Lufsurnar

Bloggsvæði Lufsanna

18.01.2008 16:29:11 / katla

Nýr prins!!

Elsku Guðrún og Sveinbjörn til hamingju með Nóa litla!!!

Hann er algjört æði :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 23:01:09 / hafdis

Annáll 2007

Nenni ég því??? neih held ekki ... en ég er búin að gera nýja skoðanakönnun hér til hliðar... skoðanakönnunin okkar semsagt breytist einu sinni á ári greinilega:lol: Vil samt bara þakka ykkur öllum fyrir liðið ár..þetta var voða notalegt allt saman hjá okkur... ánægð með síðasta saumaklúbb ..sem stóð lengi..mikið drukkið, sungið, hlegið og spjallað... :) hafið það gott elskurnar og gangi ykkur allt í haginn með það sem þið eruð að takast á við þessa dagana...

Kveðja Dísa skvísa..sem borðar marga ísa... og gengur í flís(a)peysu ...:haha:

Ok ok sökum þrýstings þá verð ég víst að henda inn smá annál um árið okkar ... tek hverja og eina lufsu fyrir!!! í stafrófsröð

Begga: Fyrri part árs bjó Berglind í Danmörku eins og svo lengi áður... í sumar kom hún svo heim og eyddi með okkur skvísunum dýrmætum tíma á austurvelli í bjórdrykkju og öðrum skemmtilegum stöðum..það var verslað, sólað sig..drukknir kokteilar og borðaður góður matur á kaffihúsum Reykjavíkurborgar... Hún er semsagt komin heim til Íslands með skvísuna sína í farteskinu hana Emilíu Hlín...Begga er farin að vinna í saltfélaginu ..áður en ég vissi sjálf hvaða búð þetta er þá hélt ég einfaldlega að þetta væri ...já saltfélag!!!! og andaði mun léttar þegar ég komst að sannleikanum um fyrirtækið og starfsemi þess:lol: Hinar íslensku lufsur þakka Beggu fyrir að snúa aftur heim ... og gefum henni því hundraðfalt húrra fyrir þessa skynsamlegu ákvörðun;) begga leitar enn draumaprinsins..og er ég viss um að hann leynist hérna einhversstaðar í sveitinni ...ikke?

Fjóla: Hún býr í Kaupmannahöfn með honum Gumma sínum og gríslíngunum tveimur þeim Arnari Mána og Hauki ...Heimsóknir lufsanna þangað út til þeirra á árinu voru í hámarki þar sem ég fór persónulega þrisvar þangað...þóra og katla tvisvar og klara einu sinni... Parið ákvað nefninlega að gifta sig núna 11 ágúst síðastliðinn með pompi og prakt í ráðhúsi kaupmannahafnar með brúðarmeyjar...hrísgrjón og dúfur! Allt var þetta hin besta skemmtun og endaði kvöldið með heljarinnar fylleríi fram á rauða nótt eða þar til fólk var farið að para sig saman á trúnó í hverju horni eða einfaldlega falla í yfirlið sökum hita og svita á dansgólfinu;) segi sona .. þetta var ógeðslega gaman!!! og ég ætla auðvitað að nefna videoið fræga í þessari færslu því það var snilld þó ég segi sjálf frá;) Fjóla og Gummi fóru svo í brúðkaupsferð til Búdapest sem var öll hin rómantískasta að sjálfsögðu;) og óskum við þeim enn og aftur til hamingju með þetta allt saman og megi hjónabandið verða þeim langt og hamingjuríkt! Fjölskyldan kom síðan öll til íslands fyrir jólin og eyddu jólunum í faðmi fjölskyldunnar í fyrsta sinn í 3 ár takk fyrir pent... það var rosalega gott að hafa þau hér á landi, djamma aðeins með fjólunni og láta öllum illum látum;) Ég má nú einnig til með að nefna köbenferðina sem ég og Þóra fórum í til Fjólu og steinunnar í apríl þar sem haldið var á ball með sálinni og stuðmönnum í circus bygningen ..og þeir sem horfðu á tónleika í sjónvarpinu núna á gamlárskvöld hafa örugglega séð í smettið á okkur þar sem okkur sást bregða fyrir AÐEINS OF OFT!!!:lol: ég allavega lá í kasti yfir þessu með fjólu og þóru á hinni línunni til skiptis.....

Guðrún Árný: stelpan sú varð ólétt á árinu .... og á að eiga núna hvað og hverju:) henni var einnig haldið surprise afmæli þann 23.mars þegar daman varð 25 ára gömul sem var alveg hrikalega skemmtilegt ..enda svipurinn á guðrúnu algjört golden moment gjörsamlega:) Turtildúfurnar Guðrún og Sveinbjörn stóðu svo í stórræðum þetta árið hvað varðar búsetumál (er ég að vinna á svæðisskrifstofu reykjaness eða ...mætti halda..allavega á orðaforðanum:lol:) en þau ákváðu að byggja sér hús á völlunum ..nánar tiltekið Hnoðravöllum ..eins og guðrún sagði sjálf "guð hvað verður erfitt fyrir börnin að bera þetta fram"!!!:) Enok litli varð svo tveggja ára á árinu og óskum við honum að sjálfsögðu til hamingju með það!! dugnaðarforkur alveg hreint!

Hafdís: moi? þið getið séð allt um mig á blogginu mínu bara:) ég fékk mér íbúð....fékk stöðuhækkun ...kærasta ....ekki kærasta:) annan kærasta ..nei djók hehe... fór þrisvar til köben...fór á þjóðhátíð ... fór í sleik .... varð full.... var líka edrú ...fór á spítala ... bara sona nokkur dæmi ...;)

Katla: ..og ómar fluttu á Burknavelli þetta árið .. Katlan er á fullu í kennó og vinnur þessa dagana í Áslandsskóla hérna í Hafnarfirði..þar er hún að kenna litlum krakkagríslíngum;) 19 stykkjum! í sumar fór Katla með familíuna til Rhodos í lúxusferð sem var víst alveg stórkostleg í alla staði ... enda komu þau vel tönuð heim öll sömul;) Þau voru einnig dugleg í útilegunum og ferðuðust töluvert um íslandið góða ... mikið fjör þar á bæ ..enda aldrei lognmolla í kringum þessa fjölskyldu ... þau elda líka besta mat í heimi þannig að hver sá sem fær boð í mat til þeirra verður ekki illa svikinn ..that´s for sure!  katla fór svo í brúðkaupið til Fjólu og Gumma í köben núna í ágúst s.l. og var það kærkomin heimsókn fyrir brúðhjónin að sjálfsögðu ... Katla fór svo aftur til köben núna í desember með honum ómari sínum í notalega parferð sona áður en jólageðveikin byrjaði:)

Klara: Hún eignaðist sína fyrstu íbúð á árinu ..flutti úr foreldrahúsum yfir í Írabakkann í Breiðholtinu með henni Ragnheiði sinni... sumarið hjá Klöru var algjört vinkonusumar enda þéttur hópur á ferð...mikið djammað....maaaargar kaffihúsaferðir og mikið verslað...já og slúðrað:) Klara fór með fleiri lufsum til köben í ágúst í brúðkaup Fjólu og Gumma og var það náttlega algjör snilldarferð .... Sms notkun náði hámarki akkúrat á þessum tíma þar sem Klara og baldur voru á þessum tímapunkti að stilla sína strengi saman;) þau búa nú saman í Írabakkanum..orðin fjögurra manna fjölskylda ..þannig að það hefur aldeilis bæst í hópinn hjá henni klöru okkar... Við vonum bara að þeim vegni vel í framtíðinni og hafi það gott saman ... þó svo að hún mætti nú alveg flytja aftur í hafnarfjörðinn;) hún veit það sjálf að það er best að vera þar! koooma svoo....

Lóa: hefur látið eins og versti námshestur á árinu ... það er varla að maður hafi náð að sjá í nefið á henni:) en stelpan stendur sig eins og hetja í skólanum og hefur vart litið uppúr bók þetta árið ..nema rétt sona til að fá sér að borða... heh.. Hún og Bjarni hafa það gott í Árbænum...mér finnst það persónulega alltof langt í burtu ..enda vil ég hafa alla í hafnarfirði:) Það var nú samt hægt að leika soldið við lóuna þegar hún átti frí ..í sumar og svo núna um jólin ..hún tók einmitt virkan þátt í lufsusaumaklúbbnum núna í desember og skellti sér á kojufyllerí með okkur hinum fyllibyttunum:) klapp fyrir því ...Það verður svo spennandi að fylgjast með gangi mála hjá þessu flotta pari....

Steinunn: Það dró til tíðinda hjá þessari lufsu því hún ákvað að setja land undir fót og flytjast til Arhus í danmörku ... ég ákvað að fylgja dömunni uppað dyrum (þvílík þjónusta;)) og ber þess ei bætur í dag.... GRÍN:) öðruvísi en þó skemmtileg ferð um ískaldar götur danmerkur um hávetur ... en þar sem við erum íslendingar þá þolum við allt ...;) Daman ákvað svo ..eftir mikinn rottugang í eigin íbúð í arhus að flytjast til kaupmannahafnar og þar er hún nú og hefur ekki í hyggju að koma til íslands í bráð... enda virðist hún hafa það ansi gott þarna úti..starfar sem hárgreiðslukona og drekkur bjór á matmálstímum ..sem og öðrum frítímum:) hún er líka sleikmaster hjá okkur lufsunum og reynum við hinar ekki að fara með tærnar þar sem hún hefur hælana ..eða hælana þar sem hún hefur tærnar ..því daman hefur örugglega töluvert forskot á okkur hinar:lol: Hún kom heim surprise í sumar ...ég vissi ekki af því fyrr en mér var brunað útá völl að sækja hana eitt kvöldið eftir vinnu ... þá voru aðstæður töluvert breyttar hér heima enda margar búnar að kaupa sér íbúð...vinnan í hámarki og ástarlífið annaðhvort í hakki eða blússandi hamingju:) Steinunn kom að sjálfsögðu í brúðkaupið hjá fjólu og gumma og hittumst við margar þar ... hún kom svo til íslands um jólin í kærkomna heimsókn ... og er bara nýfarin frá okkur ... takk fyrir komuna ljúfan:)

Þóra: var að senda mér sms um að kaupa kort í hress... greinilegt hvert áramótaheitið hjá henni er ... ;) hehe djók ... Þóra bjó með mér og Erlu á Melluvöllunum fyrri part árs..við héldum einmitt ógleymanlegt innflutningsparty í febrúar ... í sumar flutti dísin svo í sína eigin íbúð og þóra keypti sér svo síðar íbúð á Suðurgötu í Hafnarfirði..aðeins nær miðbænum ..og Hansen;) þar býr hún nú með Heklunni sinni og Erlu frænku+Eika kærastanum hennar ..en parið er á útleið þar sem þeirra bíður íbúð sem þau fara að flytja í á næstu dögum ... Þóra fór í nokkrar útlandaferðir á árinu, þó stóðu Köbenferðirnar hæst! Sumarið hennar Þóru var eitt það rosalegasta... mikill húmor í gangi sem er ekki fyrir hvern mann að skilja... margt af því sem fer gegnum huga minn núna er einfaldlega ekki prenthæft þannig að ég er að reyna að finna eitthvað sem ég má mögulega setja hér inn!!! Þóra kom í brúðkaupið fræga í DK og lét öllum illum látum að sjálfsögðu....eins og við hinar reyndar ... Þóra eyddi líka fullt af peningum á árinu ..í útlandaferðir...föt og margt fleira:) Á þessu ári ætlar þóra að koma með mér á Hróarskeldu..og á ÞJÓÐHÁTÍÐ ...eins gott þú standir við það stúlka .... já og ekki má gleyma ...piltbörnin voru líka vinsæl í lok árs ..spurning hvað nýja árið ber í skauti sér;)?

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 19:07:09 / hafdis

Lufsujól hjá mér

Jámm ...ákveðið var í síðasta saumó...sem var í gær:) að hafa lufsujól hjá mér 27unda desember ....við ætlum ekki að draga heldur koma allar með einn pakka að andvirði 1000-1500 krónur!;) Mæting er um 20:00!

Hlakka til að sjá ykkur elskurnar


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 18:51:11 / gudrunarny

Komist þið til mín á fimmtudarinn um kl. 8. 30 ?

hæhæ.. við erum nú loksins búin að koma okkur fyrir og mig langar svooo að fá ykkur í smá heimsókn og spjall :)

Ég ætla að vera með pínu gúmmelaði að narta í svo ekki koma of saddar :)

hvað segiði ? hentar fimmtudagurinn? Mæting svona  8:30

kv. Guðrún Árný


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 15:13:45 / hafdis

Saumó í kvöld hjá mér

Var að uppfæra Hverjar eru lufsurnar! Mar verður að uppfæra þetta reglulega:) Svo er lítill saumó hjá mér í kveld, sendi á ykkur allar sms í dag....er samt ekki viss að ég sé með rétt númer hjá beggu.... en þetta er bara óformlegt í þetta sinn:)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 15:57:00 / hafdis

Sko mína

Nú er þessi spá öll að rætast...bíð spennt eftir frekari tilkynningum! Mestar líkurnar á að Steinunn byrji með dana held ég....:) en það er lítið eftir af árinu......

Jæja það er semsagt alltof langt síðan það hefur verið skrifað eitthvað á þessa síðu...þannig að ég ríð á vaðið!!! Hafði hugsað mér að reyna að skipuleggja haustfagnað Lufsanna .... mesta málið er náttlega að hóa öllum saman á þeim tíma sem hentar...hmm.....mig langar allavega að fara í bústaðinn....en guð hjálpi mér hvað ég held að það verði erfitt! Látið nú heyra í ykkur skvísur...og segið hvað þið viljið gera í þessu öllu saman:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 14:45:38 / hafdis

Það hlauuut að vera;)

Spáin mín hér til hliðar í skoðanakönnuninni er öll að rætast!!!! Völvan hún Dísa;) Innilega til hamingju með bumbuna elsku Guðrún og Sveinbjörn...þúsund kossar og knús!:D

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 16:18:08 / loa

**The-beauty-Club**

 

Jæja Lufsupungarnir mínir....eins og við töluðum um í síðasta klúbbi þá ætluðum við að skella í eitt beauty-treatment kvöld sem fyrst og um að gera að drífa í því,believe it or not we need it;)

 Endilega kommentið hvaða dagsetning hentar ykkur best og hún Guðrún ætlar að bjóða fram svítuna sína....einnig væri gaman ef þið mynduð koma með einhverjar kreisí flottar hugmyndir um hvað skal hafa meðferðis og hvað muni vera gert....þó ég láti nú ekki verða að því braskilíska...anyone???

***Síjúúúússs og let us know***

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 10:57:34 / gudrunarny

Halló Halló

Hvað er að frétta af ykkur ?  Við þurfum aðeins að herða okkur í skrifunum hérna inni.

Mig langar svo að hitta ykkur stelpur ?  Viljið þið koma í heimsókn til mín í smá saumó í vikunni, þær sem geta ?

hvernig er miðvikudagurinn?

Annars vil ég heyra svo það helsta sem er að frétta af ykkur?

kv. Guðrún Árný


» 17 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 09:23:04 / gudrunarny

Enok orðinn tveggja ára ????

Jæja nú er Enok orðinn tveggja ára gutti og við höldum upp á afmælið hans á laugardaginn kl. 3.  Það verður s.s allt morandi í börnum um þrjúleytið, en ég var búin að gefa það út við nokkra fjölskyldumeðlimi að koma bara kl. 5 þegar börnunum fer fækkandi :)  Þið ráðið alveg hvort þið kíkið kl. 3 eða bara svona seinnipartinn í meiri ró og fáið ykkur kökur og góðgæti :)

allavega... Vildi bara láta ykkur vita, alltaf gaman að sjá ykkur :)

kv. Guðrún Arný


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 16:02:01 / loa

**Afmælisstelpan**

 

**Til hamingju með afmælið elsku Bleika Skvísa Dísa**

 

 

www.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.ws

www.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.wswww.Bigoo.ws

 

**Your lovely Lufsos**

 

P.S....varð að hafa þetta bara smá svona bleikt í tilefni dagsins ÞÍNS:*

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 01:11:49 / hafdis

Ammmmili!

Jibbbí kóla! Það komast semsagt allar á Tapas á þriðjudaginn í dinner og kokteils...úúú gaman gaman...! Semsagt þær sem eru á landinu... hlakka til að sjá ykkur....svo verður náttlega aðal partyið á Dillon...snilldin ein...er að farað plögga massa playlista og er komin með fullt af fólki sem ég ætla að bjóða... gæti orðið alveg slatti sem mætir á svæðið...gamlir og nýjir félagar:) hörkustuð....þetta verður eftirminnilegt.....finnst eins og ég sé að fara á reunion or something!


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 13:32:06 / steinunn

hæææææææ:)

jæja stúlkukindur!!! var komin með svo mikið leið á að kíkja á síðuna og alltaf sama! Þannig að ég tók þetta í mínar hendur og ætla að blogga aðeins fyrir ykkur!

Það er nú voða lítið að frétta héðan! ég og begga erum bara búnar að vera í skítagöllunum í viku og vorum á fullu að koma nýju íbúðinni hennar í stand og flytja svo allt dótið upp tvo já tvo rúllustiga!! er ennþá með harðsperrur!

Begga fór í gærkvöldi til Spánar í skólaferð í tíu daga og ég er að fara að djamma um helgina!!!!! jibbí! bý með frábærum stelpum sem eru algjörir stuðboltar. Þær heita Soffía, hún er að læra arkítektur og svo er það hún Þóra sem er nú reyndar úr hafnarfirði 84´módel og hún á systur sem heitir Eva sem býr hérna líka og Eva var í öldó, en ég sver það ég hef aldrei séð þær:$ en já þóra er að læra að verða læknir.

er komin á hjól og er búin að hjóla þónokkuð án þess að lenda í einhverju slysi og er ég nú bara nokkuð ánægð með það sérstaklega þar sem ég er nú ekki með bílpróf og kann nú voða takmarkað í umferðareglunum:!:

ég er búin að vera á fullu að klippa hérna heima og það eru bara allir voða ánægðir með mig.  En annars er ég bara hress!:lol:

bið að heilsa ykkur í bili    Steinunn sem ætlar að fara að fá sér bjór!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 13:58:23 / katla

Saumó!

Er ekki möst að hafa saumó í vikunni skvísur? Svona áður en að Steinunn yfirgefur klakann??

Ég skal taka það að mér, svona svo að þið komið til mín einu sinni enn áður en ég flyt :lol:

Hvaða dagur í vikunni hentar best? Ég nenni samt ekki á þriðjudaginn, því að þá verður afmæliskaffi hérna eftir 4 og ykkur er velkomið að kíkja í pulsur og kökur eða hvað það nú verður sem verður á boðstólnum :D

Hvað segiði? Hvaða dagur hentar ykkur fyrir saumó?


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 21:03:51 / hafdis

Innflutningsparty á Einivöllum

Þá er looooksins komið að því....innflutningspartyið okkar verður haldið laugardaginn 3. febrúar 2007 og þema kvöldsins er ljótasta flík foreldra þinna....allir að mæta í einhverri viðbjóðslega hallærislegri flík af foreldrum sínum eins og t.d. jakka eða skyrtu.....hatt? Þetta verður allt saman voðalega skemmtilegt og munum við reyna að halda uppi stemmingu með ýmsum uppátækjum um kvöldið....með áherslu á REYNA hehehe.... en já svo er þorrablótið í Krikanum um kvöldið og það væri ekki verra að fólk myndi útvega sér miða á það...ball með Pöpunum og Baggalút..það verður ekki leiðinlegt! Þannig að allir að taka daginn frá....redda pössun og skella sér í mjólkurbúðina því þetta verður stuð stuð stuð...og að sjálfsögðu eru makar velkomnir!


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

Aðrar síður
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan